Ásborg Arnþórsdóttir er ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu. Verksvið hennar er að veita ferðaþjónustuaðilum ráðgjöf og upplýsingar svo og að veita einstaklingum og hópum upplýsingar um svæðið og þjónustu. Þá er hún tengiliður uppsveitanna við þróun ferðaþjónustu á Íslandi.
Í Bláskógabyggð hafa menn boðið gesti velkomna í gegnum aldirnar og gera enn. Ferðaþjónusta byggir hér á gömlum hefðum, enda hafa þekktar náttúruperlur og sögustaðir í sveitinni laðað að sér gesti lengur en elstu menn muna. Þingvellir, Gullfoss, Geysi, Skálholt og Laugarvatn þekkja allir og í seinni tíð hafa nýjir staðir séð um að nýjar kynslóðir viti hvar Bláskógabyggð er t.d. Úthlíð og Húsdýragarðurinn í Slakka. Laugarási svo fátt eitt sé nefnt.
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á svæðinu. Gistimöguleikar eru fjölbreyttir; glæsileg hótel, sumarhús, fjallaskálar, farfuglaheimili og fjöldi tjaldsvæða. Fjórar sundlaugar eru í sveitinni og víða heitir pottar á áningarstöðum. Að Þingvöllum er þjóðgarður Íslendinga þar sem boðið er uppá sýningu í nýrri fræðslumiðstöð. Einnig er fjöldi gönguferða í boði með leiðsögn. Í Skálholti er fjölbreytt menningardagskrá allt árið um kring og sumartónleikar skipa fastan sess allar helgar í júlí og byrjun ágúst. Í Húsdýragarðinum í Slakka má sjá öll íslensku dýrin í návígi og fleira skemmtilegt. Boðið er upp á gúmmíbátasiglingar á Hvítá og ferðir á Langjökul í bílum og sleðum. Fjölbreyttar hestaferðir eru í boði, golfvellir og víða eru fallegar gönguleiðir og lág fell eða fjöll sem hægt er að klífa.
Ferðamálafulltrúi mælir með því að þeir sem dvelja í Bláskógabyggð í lengri eða skemmri tíma kynni sér það sem Uppsveitir Árnessýslu hafa upp á að bjóða. Hér er góð samvinna milli sveitarfélaga. Ferðaþjónustustaðir eru hver með sína sérstöðu vinna vel saman og skipa Uppsveitunum sess sem ferðaþjónustusvæði í fremstu röð.
Ítarlegar upplýsingar er að finna á Uppsveitakortinu sem gefið er út á hverju ári með tæmandi lista yfir þjónustu. Kortið liggur frammi á upplýsingamiðstöðvum á landsvísu og þjónustustöðum á svæðinu.
Einnig má fræðast um svæðið á internetinu á Uppsveitasíðunum www.sveitir.is
Ársskýrsla 2008
Verið velkomin,
Ásborg Arnþórsdóttir
Ferðamálafulltrúi