Í sveitarfélaginu eru reknir tveir leikskólar, í Reykholti og að Laugarvatni. Þá rekur sveitarfélagið einn skóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar sem hefur tvær starfsstöðvar að Laugarvatni og Reykholti. Vilji sveitarfélagsins hefur verið og er að reka öfluga skóla þar sem metnaður og gleði er ríkjandi. Árangur í námi næst þar sem samskipti heimila og skóla eru góð og stjórnun og skipulag skýrt. Við skorum á alla að vinna að því markmiði.
Góður skóli er glaður skóli!