|
Skólastjóri: |
Arndís Jónsdóttir |
|
Aðstoðarskólastjóri: |
Sigmar Ólafsson |
|
Aðsetur: |
Reykholti og Laugarvatni |
|
Sími: |
Reykholt 486-8830 Laugarvatn: 486-1224 |
|
Fax: |
486-8832 |
|
Heimasíða: |
www.blaskogabyggd.is/skoli |
|
Netfang: |
adis@ismennt.is |
|
Viðtalstímar: |
Eftir samkomulagi |
|
Fjöldi barna: |
168 |
Nánari upplýsingar um skólann
Grunnskóli Bláskógabyggðar
Grunnskóli Bláskógabyggðar er heilstæður grunnskóli, þar sem nemendur eiga þess kost að stunda nám sitt í vistlegu og hlýlegu umhverfi. Skólasamfélagið er traust og mikill vilji til þess að skapa gott samband á milli skóla og heimila. Grunnskóli Bláskógabyggðar tekur til starfa 1. ágúst 2003 en áður voru starfandi tveir aðskildir skólar Reykholtsskóli í Biskupstungum og Grunnskólinn að Laugarvatni.
Skólatími er samfeldur og hefst að morgni. Börn sem búa fjærri skóla er ekið með skólabílum.
Á þessu skólaári eru nemendur á grunnskólaaldri 168, en alls 183 þegar 5 ára börnin eru talin með en þeim er boðið uppá kennslu einn dag vikunnar.
Kennarar skólans eru 19 að tölu auk skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Einnig koma að skólanum
7 stundakennarar. Í tengslum við skólann fer fram tónlistarkennsla á vegum Tónlistarskóla Árnessýslu. Einnig er öflugt kórastarf við skólann sem framvegis verður hluti skólastarfs.
Íþróttastarf er mikið fyrir alla aldurshópa bæði á skólatíma og í samvinnu við íþróttafélög á svæðinu og þá oft í beinu framhaldi af skóla.
Svo vitnað sé í stefnu skólans þá er lögð áhersla á eftirfarandi:
að fram fari jákvætt, hvetjandi og samfellt nám að samstarf heimilis og skóla sé virkt og ánægjulegt að skólinn nýti sér sérstöðu umhverfisins að skólinn sé í stöðugri þróun og framförum er taki mið af samfélagsbreytingum á hverjum tíma.
Svo vitnað sé í stefnu skólans þá er lögð áhersla á eftirfarandi:
að fram fari jákvætt, hvetjandi og samfellt nám
að samstarf heimilis og skóla sé virkt og ánægjulegt
að skólinn nýti sér sérstöðu umhverfisins
að skólinn sé í stöðugri þróun og framförum er taki mið
af samfélagsbreytingum á hverjum tíma