• Hafðu samband
  • Prenta
  • English
  • Fréttasíða
  • Stjórnsýsla
  • Fundargerðir
  • Skipulags- og byggingamál
  • Myndaalbúm
  • Fyrirspurnir
  • Forsíða
  • Um Bláskógabyggð
  • Stjórnsýsla
  • Skipulags og byggingamál
  • Atvinnu- og samgöngumál
  • Fræðslumál
  • Íþrótta- og æskulýðsmál
  • Húsnæðismál
  • Félagsþjónusta
  • Menningarmál
  • Þjónusta
  • Umhverfismál
  • Tengdir vefir
  • Reglurgerðir og gjaldskrár
  • Eyðublöð
  • Bláskógafréttir
  • Lóðir til úthlutunar
  • Hundahald
  • Sorpmál
  • Laugdælingur
  • Ársreikningar
  • Kortsjá kort af uppsveitum







 

Auglýsing

um greiðslu húsaleigubóta árið 2008

 

 

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar ákvað á fundi sínum þann 4. desember 2007 að húsaleigubætur verði greiddar á árinu 2008 í samræmi við ákvæði laga nr. 138/1997.

 

Fjárhæðir húsaleigubóta verða sömu og grunnfjárhæðir sem ákveðnar eru í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu.

 

Umsóknir með fullnægjandi gögnum sem berast í síðasta lagi 16. dag mánaðarins, verða afgreiddar í sama mánuði, en umsóknir sem berast síðar, verða afgreiddar í næsta mánuði á eftir.

 

Húsaleigubæturnar greiðast mánaðarlega þann 1. hvers mánaðar eða næsta virkan dag þar á eftir vegna næsta mánaðar á undan og verða þær lagðar inn á bankareikning viðkomandi bótaþega.

 

Skilyrði fyrir rétti til húsaleigubóta eru m.a. að húsaleigusamningur sé gerður á staðfest eyðublað og að hann sé þinglýstur, nema þegar um íbúðir í eigu sveitarfélagsins er að ræða.  Húsaleigusamningur má ekki vera til styttri tíma en sex mánaða.  Leggja þarf fram staðfest afrit af skattframtali, launa/tekjuseðla síðustu þriggja mánaða og staðfestingu frá skóla um nám ef það á við. 

 

Réttur til húsaleigubóta skapast ekki m.a. ef leigt er hjá nánum ættingja, ef einhver sem býr í sömu íbúð nýtur vaxtabóta eða ef ekki er sérsnyrting og séreldhús í viðkomandi húsnæði.  Ath. þó ákvæði um húsnæði námsmanna og sambýli fatlaðra.

 

Ýmis önnur skilyrði eru fyrir greiðslu húsaleigubóta, vinsamlegast kynnið ykkur þau frekar hjá starfsmönnum á skrifstofu Bláskógabyggðar og fáið afrit af reglugerð um húsaleigubætur.

 

Úrskurður um rétt til húsaleigubóta gildir aðeins fyrir eitt almanaksár í senn.
 
Bláskógabyggð, skrifstofa | Félagsheimilið Aratungu | Sími: 486 8808 | Fax: 486 8709 | Netfang: valtyr@blaskogabyggd.is
Forsíða  |  Um Bláskógabyggð  |  Stjórnsýsla  |  Skipulags og byggingamál  |  Atvinnu- og samgöngumál  |  Fræðslumál  |  Íþrótta- og æskulýðsmál  |  Húsnæðismál  |  Félagsþjónusta  |  Menningarmál  |  Þjónusta  |  Umhverfismál  |  Tengdir vefir  |  Reglurgerðir og gjaldskrár  |  Eyðublöð  |  Bláskógafréttir  |  Lóðir til úthlutunar  |  Hundahald  |  Sorpmál  |  Laugdælingur  |  Ársreikningar  |  Kortsjá kort af uppsveitum