Skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu er samvinnunefnd Bláskógabyggðar, Grímsnes-og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða-og Gnúpverjahrepps um skipulagsmál. Nefndin fjallar um mál á deiliskipulagsstigi og tengd mál og gerir tillögur til sveitarstjórna um afgreiðslu þeirra. Fundargerðir nefndarinnar eru sendar sveitarstjórnum til staðfestingar þeirra mála sem viðkomandi sveitarstjórn snertir. Nefndin fjallar ekki um mál á aðalskipulagsstigi sem eru alfarið á valdsviði sveitarstjórna. Fundir skipulagsnefndar eru að jafnaði haldnir þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Erindi sem leggja skal fyrir fund skulu berast til embættis skipulagsfulltrúa í síðasta lagi tveimur virkum dögum fyrir fund.
Í skipulagsnefnd sitja nú oddvitar sveitarstjórna í Uppsveitum Árnessýslu.
Í skipulagsnefnd sitja:
- Ragnar Magnússon, oddviti Hrunamannhrepps (varamaður Halldóra Hjörleifsdóttir)
- Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar (varamaður Helgi Kjartansson)
- Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps ( varamaður Hörður Óli Guðmundsson)
- Jón Vilmundarson, varaoddviti Skeiða-og Gnúpverjahrepps (varamaður Gunnar Örn Marteinsson)
Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu.