Þjónustu- og framkvæmdasvið Bláskógabyggðar,
Bjarkarbraut 2, Reykholti, 801 Selfoss,
sími: 486 8726 – gsm: 860 4440 – netfang: hkh@blaskogabyggd.is
Þjónustu- og framkvæmdasvið Bláskógabyggðar sér um rekstur og framkvæmdir eftirfarandi rekstrareininga sveitarsjóðs:
Ø Þjónustumiðstöð Bláskógabyggðar, Reykholti.
Undir Þjónustumiðstöðina heyrir umsýsla leikvalla, íþróttavalla, gatnakerfis, gangstétta, göngustíga, umferðamerkinga, minnismerkja og opina svæða í þéttbýliskjörnum Bláskógabyggðar. Þjónustumiðstöðin stýrir snjómokstri og hálkueyðingu innan þéttbýliskjarnanna, sem og á skólaleiðum í dreifbýli. Þjónustumiðstöðin heldur utan um sorphirðu sveitarfélagsins, rekstur móttökusvæða sorps og hreinsun opinna svæða. Sími Þjónustumiðstöðvar er 486-8726.
Ø Félagsheimilið Aratunga, Reykholti.
Í Félagsheimilinu Aratungu er leigð út aðstaða til samkomuhalds. Þar er einnig rekið mötuneyti fyrir stofnanir Bláskógabyggðar. Sími húsvarðar félagsheimilisins er 895-6603 og sími mötuneytisins er 486-8811.
Ø Íþróttamiðstöðin í Reykholti.
Í íþróttamiðstöðinni er íþróttahús, sundlaug og heitir pottar. Sími íþróttamiðstöðvar er 486-8807.
Ø Eignasjóður Bláskógabyggðar.
Undir Eignarsjóð heyra allar fasteignir Bláskógabyggðar fyrir utan íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins. Sími Eignasjóðs er 486-8726.
Ø Leiguíbúðir og félagslegar íbúðir.
Hér er rekstur þess íbúðarhúsnæðis sem er í eigu Bláskógabyggðar, hvort sem það er til félagslegra þarfa eða á almennum markaði. Sími leiguíbúða og félagslegra íbúða er 486-8726.
Ø Fráveita Bláskógabyggðar.
Fráveitan sér um rekstur fráveitukerfis í þéttbýliskjörnum Bláskógabyggðar ásamt því að fylgja eftir reglulegri losun rotþróa í sveitarfélaginu. Sími fráveitunnar er 486-8726.
Sviðsstjóri Þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar er Halldór Karl Hermannsson.