Ávarp sveitarstjóra
Nú er opnuð ný og breytt heimasíða fyrir sveitarfélagið Bláskógabyggð. Markmið með endurgerð heimasíðunnar er að þróa þennan upplýsingamiðil og gera enn betri upplýsingaveitu um málefni sveitarfélagsins og þjóna þörfum íbúanna og annarra sem leita eftir upplýsingum og þjónustu. Útlit og uppbygging síðunnar er einfaldari og skýrari sem auðvelda ætti öflun upplýsinga og gagna.
Fyrirtækið daCoda ehf. hefur staðið að gerð og hönnun heimasíðunnar og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir vel unnið verk. Heimasíðan verður áfram í stöðugri þróun og markmiðið er að bæta hana stöðugt í takt við þróun og kröfur nútímans.
Allar ábendingar um efnisþætti sem bætt gætu þessa nýju heimasíðu eru vel þegnar og beina skal ábendingum til skrifstofu sveitarfélagsins. Einnig verður sérstök fréttasíða ásamt viðburðadagatali á síðunni sem íbúar eru hvattir til að nýta sér við að koma skilaboðum á framfæri. Verður reynt að koma til móts við slíkar óskir eftir því sem við verður komið.
Verðið velkomin til Bláskógabyggðar, þar mun brosandi byggð taka á móti ykkur. Jafnframt býð ég þér lesandi og gestur góður velkominn á heimasíðu sveitarfélagsins og njóttu vel sem hún hefur að bjóða.
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri Bláskógabyggðar