43. fundur veitustjórnar

43. fundur stjórnar Bláskógaveitu 19. apríl 2011 kl. 16:00.

Mættir: Jóhannes Sveinbjörnsson, Kjartan Lárusson og Þórarinn Þorfinnsson
stjórnarmenn Bláskógaveitu, Valtýr Valtýsson sveitarstjóri, Benedikt Skúlason
veitustjóri,  Andrés Bjarnason starfsmaður veitunar og Bent Larsen.

1. Virkjun á köldu vatni á Laugarvatni.
Rætt var um virkjun á köldu vatni á Laugarvatni vegna óskar Fontana ehf. um kaup á
köldu vatni. Farið var yfir útboðsgögn sem Bent Larsen hefur unnið vegna verksins.
Fjárhæð er undir viðmiðunarmörkum innkaupareglna Bláskógabyggðar og því samþykkt
samhljóða að fara í lokað útboð án auglýsingar.  Ákveðið var að leita til þeirra verktaka
innan sveitarfélagsins sem talið er að hafi þann tækjakost sem þarf til verksins.
Útboðsgögn fá eftirtaldir aðilar: Ketilbjörn ehf, J.H-vinnuvélar ehf,  Ásvélar ehf, og BD
vélar ehf.  Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 28. apríl kl. 13.00.

2.  Erindi frá Gísla Pálssyni vegna kaldavatnsmála í Vörðufelli.
Tekið var fyrir erindi frá Gísla Pálssyni, þar sem óskað er eftir köldu vatni í sumarhús í
Vörðuhlíð.  Umræður urðu um erindið og var Jóhannesi og Benedikt falið að svara Gísla.

Fundi slitið kl 17:45