8. fundur framkvæmda og veitunefndar
- fundur framkvæmda- og veitunefndar haldinn í Aratungu, Reykholti, 22. október 2020, kl. 09:00.
Fundinn sátu:
Valgerður Sævarsdóttir, Helgi Kjartansson, Axel Sæland, Ásta Stefánsdóttir, Bjarni D. Daníelsson og Benedikt Skúlason.
Fundinn sátu í Aratungu Hlegi Kjartansson, Bjarni D. Daníelsson og Ásta Stefánsdóttir, aðrir tóku þátt í gegnum fjarfundabúnað.
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.
1. | Fjárhagsáætlun 2021 og 2022-2024 – 2009031 | |
Viðhald og fjárfesting 2021, umræða um drög að fjárfestingaáætlun. Sviðsstjóri kynnir einnig stærri viðhaldsverkefni eignasjóðs. | ||
Farið var yfir fyrstu drög að fjárfestingaáætlun og helstu viðhaldsliði. | ||
2. | Stígagerð styrkir vegna covid – 2010023 | |
Hugmyndir að stígagerð á grundvelli styrks skv. samningi við Byggðastofnun. | ||
Farið var yfir tillögu að stígagerð í Laugarási, Laugarvatni og Reykholti fyrir það fjármagn sem sveitarfélaginu var úthlutað til eflingar samfélags vegna covid-19. Sviðsstjóra og oddvita var falið að vinna áfram að verkefninu. | ||
3. | Sundlaug, Laugarvatni, viðhald – 2010022 | |
Tillaga sviðsstjóra um að ráðist verði í viðhald á sundlauginni á Laugarvatni (skipt um dúk á hliðum). | ||
Lögð var fram kostnaðaráætlun vegna viðhalds á sundlaugardúk. Samþykkt var að leggja til við sveitarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna verkefnisins, kr. 2.500.000 kr. | ||
Fundi slitið kl. 11:25.
Valgerður Sævarsdóttir | Helgi Kjartansson | |
Axel Sæland | Ásta Stefánsdóttir | |
Bjarni D. Daníelsson | Benedikt Skúlason | |