Aðalfundur Ungmennafélags Biskupstungna fimmtudaginn 12. mars 2015
Fundarboð
Aðalfundur Ungmennafélags Biskupstungna, (aðaldeild, leikdeild og íþróttadeild)
Fundirnir verða haldnir á Café Mika fimmtudaginn, 12. mars 2015. Byrjað verður á fundi íþróttadeildar kl. 20:00, fundir leikdeildar og aðaldeildar koma svo í kjölfarið.
Á fundunum fara fram venjuleg aðalfundarstörf.
Á aðalfundi Íþróttadeildar verður íþróttamaður og íþróttakona félagsins útnefnd.
Félagar UMF. Bisk. eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um starf deilda félagsins.
Þá eru nýjir félagar velkomnir í félagið.
Kaffiveitingar verða í boði félagsins.
Með von um góða þátttöku.
Stjórnir aðaldeildar, íþróttadeildar og leikdeildar UMF. Bisk.