Álagning fasteignagjalda 2020

Upphafsálagningu fasteignagjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2020.

 

Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagninu vegna ársins 2020. Álagningaseðlar eru ekki sendir út en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir á Mínar síður“ undir kassa merktur Pósthólf. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða íslykli.

Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn á heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar.

Allar nánari upplýsingar um álagningareglur Bláskógabyggðar má finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Bláskógabyggð er sérstaklega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum og bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið, sem er um afsláttarreglur.

Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa samband við Sigríði Emilíu Eiríksdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 480-3000 (mánudaga fimmtudaga frá kl. 9.00 -12.00 og 13.00 15.00, en föstudaga 9.00 12.00) eða í netfang: emma@blaskogabyggd.is .