Almennur fundur um fjarskiptamál
Háhraðatengingar á öll heimili í sveitum landsins fyrir 2020.
Mánudaginn 30. mars á Suðurlandi.
Mánudaginn 30. mars kl. 16.30 Félagsheimilið á Flúðum
Mánudaginn 30. mars kl. 20.30 Heimaland í Rangárþingi eystra
Rætt verður um tillögur að uppbyggingu breiðbandskerfis í sveitum landsins og tillögur starfshóps sem fjallað hefur um málið.
Framsögumenn verða þingmennirnir Haraldur Benediktsson og Páll Jóhann Pálsson.
Fundarstjóri, Halldóra Hjörleifsdóttir varaoddviti Hrunamanna, Flúðum
Fundarstjóri, Kristín Þórðardóttir, Heimalandi í Rangárþingi eystra
Að loknum framsögum svara framsögumenn spurningum úr sal en góður tími mun gefast til umræðna og fyrirspurna.
Kaffiveitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fundarboðendur,
Haraldur Benediktsson, alþingismaður
Páll Jóhann Pálsson, alþingismaður