Atvinnuauglýsing

Sveitarfélagið Bláskógabyggð óskar eftir aðila/aðilum til að sjá um þjónustu á móttökustöðvum sveitarfélagsins, fyrir úrgang á Heiðarbæ, Laugarvatni og í Reykholti.

 

Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. september 2016.

 

Lögð er áhersla á að umsækjandi hafi góða samskiptahæfileika, sé stundvís, geti unnið sjálfstætt og sýni frumkvæði í störfum

 

Konur eru hvattar til að sækja um starfið jafnt sem karlar.

 

Umsóknarfrestur er til 25. Ágúst n.k. Umsóknir berist til Bjarna Daníelssonar, sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs Bláskógabyggðar, Aratungu, 801 Selfoss, netfang bjarni@blaskogabyggd.is, sem veitir nánari upplýsingar í síma 860-4440