Auglýsing vegna útboðs á Laugarvatni

Útboð

Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:

Laugarvatn-Hverabraut

Verklok eru 15.05.2022

Verkið felur í sér lagningu botnlanga og vatns- og fráveitu við Hverabraut á Laugarvatni.  Grafa skal fyrir burðarlagi og vatns- og fráveitulögnum og leggja samanber útboðslýsingu.

 

Helstu magntölur eru:

Gröftur á lausu efni, brottekið                                             500 m³

Gröftur á lausu efni útjafnað við vinnusvæði                    500 m³

Fylling undir og yfir lagnir                                                     150 m³

Vatnsveitulagnir                                                                      400 m

Fráveitulagnir                                                                           250 m

Styrktarlag Hverabrautar og göngustígs                             790 m³

 

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum 17. janúar 2022.  Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Bárð hjá Eflu Suðurlandi með því að senda  tölvupóst á netfangið ba@efla.is  og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila til skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti 806 Selfossi, fyrir kl. 11:00 fimmtudaginn 3. febrúar og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

F.h. Bláskógabyggðar

Kristófer Tómasson sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs