Brekkuholt, ný gata

Gatnagerð við götuna Brekkuholt í Reykholti hófst í dag. Um er að ræða nýja götu þar sem gert er ráð fyrir 11 misstórum lóðum, 4 fyrir raðhús, 4 fyrir parhús og 3 fyrir einbýlishús. Íbúðir geta verið á bilinu 23-31. Fjórir verktakar sameinast um að sjá um gatnagerðina en það eru BD vélar, Ketilbjörn, JH vinnuvélar og Gullverk.

 

Kveðja,

Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri