Breyting á þjónustu vegna COVID-19

  1. maí 2020

Nokkuð hefur verið slakað á samkomubanni, einkum hvað varðar starfsemi leik- og grunnskóla. Eftirfarandi breytingar gilda nú hvað varðar starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna COVID-19 og takmarkana á samkomuhaldi.

Skrifstofa:

Skrifstofa sveitarfélagsins verður með hefðbundinn afgreiðslutíma frá 4. maí n.k.

 

Bláskógaveita:

Starfsmenn sinna ekki mælaskiptum og álestri. Starfsmenn sinna bilanaþjónustu og rekstri veitna.

 

Bókasafn:

Bókasafn Bláskógabyggðar í Bláskógaskóla verður með hefðbundinn afgreiðslutíma.

Bókasafn Menntaskólans á Laugarvatni er lokað, tilkynning um möguleika á útlánum verður birt á facebook.

 

Félagsheimilið Aratunga:

Lokað er fyrir útleigu á Aratungu.

 

Félagsmiðstöð:

Félagsmiðstöð opnar að nýju eftir 4. maí.

 

Gámasvæði:

Opnunartími er óbreyttur. Óheimilt er að skila flokkuðum endurvinnsluúrgangi frá heimilum sem eru í sóttkví eða eingangrun á gámasvæði. Allur úrgangur frá heimilum í sóttkví eða einangrun skal fara í óflokkað sorp (almennan úrgang).

 

Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni:

Sundlaugar, íþróttahús og líkamsrækt eru lokuð, nema fyrir skólasund og æfingar barna og ungmenna.

Íþróttaæfingar geta hafist að nýju, með þeim takmörkunum sem tilkynntar hafa verið.

Starfsemi nuddara og sjúkraþjálfara í íþróttahúsum Bláskógabyggðar getur hafist á ný 4. maí.

 

Mötuneyti Aratungu:

Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti.

Lokað er fyrir aðgang eldri borgara að mötuneyti, en þeim gefinn kostur á að fá heimsendan mat.

Mötuneyti mun starfa með hefðbundnum hætti fyrir grunn- og leikskóla frá og með 4. maí. Starfsmenn skrifstofu hafa ekki aðgengi að mötuneytinu.

 

Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni:

Ekki er matur fyrir eldri borgara þar sem mötuneyti ML hefur lokað.

 

Skólastarf í Bláskógabyggð:

Frá og með mánudeginum 4. maí starfa grunn- og leikskólar með hefðbundnum hætti þar sem takmarkanir á samkomuhaldi hafa verið felldar niður hvað varðar nemendur. Enn um sinn gilda takmarkanir hvað varðar starfsfólk og foreldra.

 

Velferðarþjónusta Árnesþings – afgreiðsla meðan samkomubann stendur yfir:

Almennt gildir að áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma. Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofum meðan þetta ástand varir.

Barnavernd-  Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 480-1180. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust.

Heimaþjónusta – síma 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is

Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur – vinsamlega hringið í 483-4000 eða sendið tölvupóst á netfangið sigurjon@arnesthing.is

Málefni fatlaðs fólks – áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000, netfang arna@arnesthing.is

Unnið er eftir forgangslista varðandi heimaþjónustu. Notendur heimaþjónustu frá tilkynningar frá heimaþjónustunni varðandi fyrirkomulag.