Breyting á þjónustu vegna COVID-19

Breyting á þjónustu vegna COVID-19

  1. október 2020

Takmarkanir á starfsemi Bláskógabyggðar taka mið af auglýsingu ráðherra sem tók gildi á miðnætti 5. október 2020. Eftirfarandi breytingar tóku þá gildi varðandi starfsemi Bláskógabyggðar og þjónustu sveitarfélagsins vegna COVID-19.

Almennt um stofnanir sveitarfélagsins:

Leitast verður við að hafa fjarfundi í stað funda á staðnum og ekki verða haldnir fundir á staðnum með utanaðkomandi aðilum. Takmarka skal eins og hægt er ferðir starfsmanna á milli stofnana, en þar sem það er nauðsynlegt verði grímuskylda (dæmi starfsmaður sem sækir mat í mötuneyti, starfsmaður sem sinnir nauðsynlegu viðhaldi o.þ.h.). Heimsóknum utanaðkomandi aðila (s.s. eftirlit, viðhald, þjónusta) verður frestað ef unnt er, en ef nauðsynlegt reynist að fá utanaðkomandi aðila inn á stofnun þá er grímuskylda og skal þess gætt að viðkomandi aðili hitti sem fæsta starfsmenn, nemendur eða aðra notendur þjónustu. Í þeim tilvikum þar sem verktakar sinna ræstingum utan opnunartíma er ekki grímuskylda.

 

Skrifstofa:

Skrifstofa sveitarfélagsins er með hefðbundinn afgreiðslutíma. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (1 metra reglu). Hvatt er til þess að hafa samband við skrifstofuna með tölvupósti eða í gegnum síma, fremur en að koma á staðinn.

 

Bláskógaveita:

Starfsemi er hefðbundin að öðru leyti en því að starfsmenn sinna ekki álestrum og mælaskiptum inni á heimilum. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk (1 metra reglu).

 

Félagsheimilið Aratunga:

Opið er fyrir útleigu á Aratungu, enda verði farið eftir reglum um hámarksfjölda einstaklinga sem koma saman, sem er nú 20 manns, og gætt að fjarlægðarmörkum.

 

Félagsmiðstöð:

Félagsmiðstöðin Zetor verður lokuð á meðan strangar samkomutakmarkanir gilda, er það gert þar sem ungmenni úr nokkrum skólum koma þar saman og til að draga úr hættu á smiti á milli skólanna.

 

Gámasvæði:

Afgreiðslutími er hefðbundinn. Gætt skal að því að virða fjarlægðarmörk.

 

Íþróttamiðstöðvarnar í Reykholti og á Laugarvatni:

Sundlaugar eru opnar en sérstakar takmarkanir gilda um gestafjölda, 50% af heimild skv. starfsleyfi, auk þess sem gæta skal að fjarlægðartakmörkunum.

Íþróttahús eru opin fyrir kennslu og íþróttir leik- og grunnskólabarna með hefðbundnum hætti, en takmarkanir gilda um íþróttir fullorðinna í samræmi við reglur sérsambanda ÍSÍ. Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum innandyra, og er foreldrum því óheimilt að fylgja börnum sínum inn í íþróttahús.

Líkamsrækt er lokuð.

Starfsemi nuddara og sjúkraþjálfara í íþróttahúsum Bláskógabyggðar er heimiluð, en grímuskylda í gildi.

 

Mötuneyti Aratungu:

Lokað er fyrir aðgang kostgangara að mötuneyti og gildir það einnig um gesti á stofnunum sveitarfélagsins.

Eldri borgarar hafa aðgang að mötuneyti, en geta einnig valið að sækja mat á staðinn til að taka með heim. Eldri borgarar mæta ekki í mötuneyti fyrr en kl. 12:00 til að forðast samgang við nemendur og starfsfólk grunnskóla.

Mötuneyti starfar með hefðbundnum hætti fyrir grunn- og leikskóla. Starfsmenn skrifstofu hafa aðgengi að mötuneytinu.

 

Matur fyrir eldri borgara á Laugarvatni:

Enn sem komið er geta eldri borgarar á Laugarvatni ekki komið í mötuneyti ML, þar sem ýmsar takmarkanir gilda.

 

Skólastarf í Bláskógabyggð:

Grunn- og leikskólar starfa með hefðbundnum hætti þar sem takmarkanir á samkomuhaldi gilda ekki fyrir börn fædd 2005 og síðar. Takmarkanir gilda enn hvað varðar starfsfólk og foreldra. Skólastjórnendur munu kynna fyrirkomulag hver í sínum skóla, en takmarkanir eru t.d. á komum foreldra inn í skóla og foreldrar leikskólabarna fylgja þeim ekki lengra en í fataklefa.

 

Velferðarþjónusta Árnesþings – afgreiðsla meðan neyðarástand almannavarna stendur yfir

Ekki er hægt að koma í viðtal á skrifstofu meðan neyðarástand almannavarna stendur yfir. Þjónusta er veitt gegnum síma og tölvupóst eða fjarfundabúnað þegar við á.

Uppsveitir s. 480-1180

Barnavernd – Tilkynningum um barnavernd skal beina á netfangið barnavernd@arnesthing.is eða í síma 483-4000. Utan hefðbundins dagvinnutíma er hringt í síma 112 ef tilkynning er þess eðlis að bregðast þurfi við henni tafarlaust.

Heimaþjónusta – sími 480-1180. Netfang sigrun@laugaras.is

Fjárhagsaðstoð og húsnæðisstuðningur – vinsamlega hringið í 480-1180 eða sendið tölvupóst á netfangið sigurjon@arnesthing.is

Málefni fatlaðs fólks – áhersla er lögð á samskipti í gegnum síma eða tölvupóst. Sími 483-4000,

Netfang arna@arnesthing.is