Félög á Suðurland
Hvernig félagslíf er í boði á Suðurlandi?
Nú er unnið að gerð gagnagrunns um hvers kyns félags- og menningarstarf sem er í boði á Suðurlandi og opið er öllum almenningi. Stjórnir félagasamtaka eru hvattar til að senda eftirtaldar upplýsingar fyrir 7. desember til skráningar í gagnagrunninn á netfangið glugginn@sudurglugginn.is :
• Heiti félagsskapar • Stutt lýsing á starfssemi • Starfssvæði • Fundarstaður og tími • Heimasíða og/eða veffang umsjónaraðila • Símanúmer tengiliðar
Tekið skal fram að skráning í gagnagrunninn er félögum að kostnaðarlausu!
Nú er tækifæri til að vekja athygli á því sem er í boði, hvort sem það eru; kórar – leikfélög – ungmennafélög – íþróttafélög – skákfélög – gönguklúbbar – kvenfélög – kirkjustarf – skotveiðifélög – listaklúbbar – sögufélög – styrktarfélög – bókmenntafélög – búnaðarfélög – danshópar – tónlistarfélög – hjónaklúbbar – málfundafélög – fornbílafélag – ferðafélög … eða eitthvað annað sem er í boði.
Gert er ráð fyrir að gagnagrunnurinn verði þýddur á ensku og á þriðja mál. Listinn verður vistaður rafrænt á vegum opinbers aðila á Suðurlandi og þar með aðgengilegur fyrir almenning.
Gagnagrunnurinn mun ná til félagsstarfs í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og í Vestmannaeyjum.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Suðurlands.