Grunnskóli Bláskógabyggðar auglýsir tvær stöður deildastjóra lausar til umsóknar
Grunnskóli Bláskógabyggðar verður í haust um 150 barna leik- og grunnskóli. Starfsstöðvar eru tvær grunnskóli í Reykholti og grunn- og leikskóli á Laugarvatni.
Deildastjórarnir skipa stjórnendateymi skólans ásamt skólastjóra sem starfar á báðum starfsstöðvum. Hlutverk deildarstjóra er sviðsstjórn á hvorum stað. Laugarvatn 75% stjórnunarhlutfall og 50% stjórnunarhlutfall í Reykholti. Hlutfall stjórnunar verður endurskoðað eftir ár.
Starfssvið deildarstjóra
– Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans
– Deildarstjóri heldur utan um daglegt starf á sinni starfsstöð
– Framfylgja nýsamþykktri skólastefnu Bláskógabyggðar
– Fagleg forysta
– Stuðla að framþróun í skólastarfi, þar er sameining leik og grunnskóla á Laugarvatni stór þáttur
– Leiða samstarf starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins
– Annar deildarstjórinn verður staðgengill skólastjóra
Menntunar og hæfniskröfur
– Grunnskólakennaramenntun skilyrði og leikskólakennaramenntun æskileg
– Menntun og/eða reynsla af stjórnun æskileg
– Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
– Góð hæfni í samskiptum
– Stjórnunar og leiðtogahæfni
– Metnaður og einlægur áhugi á skólastarfi
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 30. maí 2012
Frekari upplýsingar veitir Hrund Harðardóttir skólastjóri hrund@grbla.is s- 4868830/8616609
Heimasíða skólans er www.blaskogabyggd.is/skoli