Heimasíða Skóla- og velferðaþjónustu

Heimasíða Skóla- og velferðarþjónustu er nú loks komin í gagnið.  Á heimasíðunni má annars vegar velja upplýsingar um skólaþjónustu og hins vegar um velferðarþjónustuna. Á forsíðunni eru einnig upplýsingar um Skólaþjónustu- og velferðarnefnd, samninga, nefnd oddvita og sveitarstjóra og fundargerðir.

Á síðu skólaþjónustunnar eru upplýsingar um þjónustuna, eyðublöð s.s. tilvísanir og gátlista, upplýsingar um starfsmenn og þá leik- og grunnskóla sem skólaþjónustan sinnir.  Þar eru einnig sameiginleg markmið skóla- og skólaþjónustu.

Heimasíðan á að vera lifandi og skemmtileg, þar verða settar inn allar upplýsingar um fundi og námskeið og næstu viðburði.

Slóðin inn á heimasíðuna er www.arnesthing.is

Bestu kveðjur
Hrafnhildur Karlsdóttir