Íbúafundir um mögulega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu

„Í hvernig samfélagi vilt þú búa?“

Íbúafundir um mögulega sameiningu sveitarfélaganna í Árnessýslu.

 

Nú stendur yfir greining á kostum og göllum þess að sameina sveitarfélögin í Árnessýslu í eitt sveitarfélag. Verkefninu er stýrt af samstarfsnefnd sveitarfélaganna og ráðgjafarsviði KPMG.

Boðað er til íbúafunda vegna þessa verkefnis í hverju sveitarfélagi fyrir sig:

 

Bláskógabyggð – Aratunga í Reykholti – fimmtudaginn 18. maí kl. 19:30

Grímsnes- og Grafningshreppur – Borg í Grímsnesi – mánudaginn 22. maí kl. 19:30

Árborg – Hótel Selfoss – þriðjudaginn 23. maí kl. 19:30

Hrunamannahreppur – félagsheimili Hrunamanna – mánudaginn 29. maí kl. 20:00

Hveragerðisbær – Grunnskóli Hveragerðis – þriðjudaginn 30. maí kl. 19:30

Skeiða- og Gnúpverjahreppur – Árnes – miðvikudaginn 31. maí kl. 19:30

Flóahreppur – Þingborg – fimmtudaginn 1. júní kl. 19:30

Ölfus – Versalir í Ráðhúsi Ölfuss  –  miðvikudaginn 7. júní kl. 19:30

 

Hver fundur stendur yfir í um 2 klukkustundir.

 

Dagskrá íbúafundanna er svohljóðandi:

  1. Stutt ávarp fulltrúa viðkomandi sveitarfélags um ástæður þess að farið er í þessa vinnu.
  2. Kynning á sviðsmyndum um framtíð sveitarfélaganna.
  3. Yfirferð með íbúum um framtíðaráherslur þeirra.

 

Sveitarstjórnir í Árnessýslu hvetja alla íbúa til þess að mæta á þessa íbúafundi til þess að kynna sér sviðsmyndir um framtíð sveitarfélaganna. Þarna er einnig mikilvægt tækifæri fyrir íbúa til að koma skoðunum sínum á framfæri.

 

Fundirnir eru öllum opnir og komist íbúar ekki til fundar á auglýstum fundartíma í þeirra sveitarfélagi er þeim frjálst að mæta á einhvern hinna fundanna.

 

Smellið hér fyrir aftan á auglýsingu      Sam