Kennari og stuðningsfulltrúi óskast í Bláskógaskóla Reykholti

Laus er til umsóknar 80%-100% staða umsjónarkennara yngsta stigs.

Kennsluréttindi á grunnskólastigi.

Hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi á teymisvinnu.

Áherslur skólans eru á teymiskennslu og fjölbreytta kennsluhætti og starfa umsjónarkennarar yngsta stigs saman í teymi.

 

Stuðningsfulltrúa vantar 50% starfshlutfall. Vinnutími frá kl. 10 alla virka daga. Helstu verkefni eru gæsla í hádegi og frímínútum og stuðningur við nemendur með sérþarfir.

Í Bláskógaskóla í Reykholti eru rúmlega 70 nemendur í 1.-10. bekk.Laun eru skv. kjarasamningi KÍ og LN. Umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Hreinsdóttir, skólastjóri, í síma 480 3020 eða 898 5642.

Umsóknarfrestur er til 20. júní 2016.