Kort af miðhálendisþjóðgarði
Bláskógabyggð hefur látið útbúa kort sem sýnir mörk fyrirhugaðs þjóðgarðs á miðhálendi Íslands, innan sveitarfélagsins. Það svæði innan Bláskógabyggðar sem lendir innan þjóðgarðs er alls 212.665 hektarar, eða 64,4% af flatarmáli sveitarfélagsins. Á kortunum má sjá sveitarfélagamörkin, friðlýst svæði og fyrirhugaðan miðhálendisþjóðgarð.