Kosningar 9. apríl 2011 kjörstaðir í Bláskógabyggð

Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram þann 9. apríl 2011

um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 (Icesave).

Kjörstaðir í Bláskógabyggð eru tveir:

  1. Grunnskóli Bláskógabyggðar, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
  2. Skrifstofa byggingarfulltrúa Laugarvatni, Dalbraut 12, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Kjósendur eru hvattir til að hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er.

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu fram á kjördag, en einnig er bent á upplýsingavef innanríkisráðuneytisinshttp://www.kosning.is en þar geta kjósendur m.a. kannað hvar þeir eru á kjörskrá.

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar