Kvöldfundur Foreldrafélags Grunnskóla Bláskógabyggðar

Foreldrafélag Grunnskóla Bláskógabyggðar boðar til kynnningar- og fræðslufundar í Grunnskólanum á Laugarvatni, fimmtudaginn 19. nóvember nk. kl. 20.00.
Foreldrafélagið hefur fengið Helgu Margréti Guðmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Landssamtökunum Heimili og skóli til að vera með fyrirlestur fyrir foreldra og aðstandendur.
Fundurinn, sem er fyrir foreldra allra nemenda í Grunnskólanum, (bæði á Laugarvatni og í Reykholti), hefst eins og fyrr segir   kl. 20.00 og er aðgangseyrir kr. 500.-
Stjórn foreldrafélagsins hvetur  alla foreldra til að mæta og fræðast um hlutverk foreldrafélaga og ávinning af samstarfi heimila og skóla.
Stjórn Foreldrafélagsins