Leiguíbúð í Bláskógabyggð

Íbúðin að Kistuholti 3a í Reykholti er laus til leigu. Íbúðin er félagsleg íbúð sem eldri borgarar hafa forgang á að leigja. Sæki engir eldri borgarar um húsnæðið verður hún leigð almennum umsækjanda.

Íbúðin er laus til útleigu 1.5.2017 og umsóknarfrestur er til

25.apríl 2017

Umsóknir skulu berast á skrifstofu Bláskógabyggðar eða á netfangið bjarni@blaskogabyggd.is, merktar “Kistuholt 3a “

Upplýsingar gefur Bjarni í síma 860-4440.