Menningararfur – skiptir hann þig máli?

Ef svarið er já, þá átt þú erindi á umræðufund um óáþreifanlegan menningararf og

kynningu á sáttmála UNESCO um verndun hans.

21. – 23. janúar verða haldnir fjórir umræðu- og kynningarfundir

á suðurlandi um óáþreifanlegan menningararf (menningarerfðir)

og sáttmála UNESCO um verndun hans.

Fundirnir á Hvolsvelli og á Klaustri verða í samstarfi við Brynju

Davíðsdóttur framkvæmdastjóra Kötlu Jarðvangs sem fer yfir

stöðu jarðvangsins eftir úttekt matsmanna og innleiðingu í

UNESCO Global Geoparks 2015.

Menningarerfðir eru til dæmis þekking og kunnátta sem tengist

reykingu, söltun og súrsun matvæla, hestamennsku, þorrablótum,

sauðfjárbúskap, vefnaði, kveðskap, þðdansi, þðbúningum,

útskurði og eggjatöku; að kæsa hákarl, smíða trébát og vinna

með ull.

Fundirnir eru í tengslum við verkefni á vegum

menntamálaráðuneytinsins og er markmiðið að

koma af stað umræðu um menningarerfðir

fá hugmyndir um menningarerfðir sem fólkinu í landinu finnst mikilvægt að vernda

fá upplýsingar um félög / hópa sem starfa á sviði menningarerfða

kynna sáttmála UNESCO um verndun menningarerfða en lykilatriði hans er að við sem

landið byggjum segjum til um hvað eru menningarerfðir okkar og hvernig best sé að

vernda þær.

Fundatímar:

Selfoss – Fjölheimar, fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00

Hvolsvöllur – Hótel Hvolsvöllur, föstudaginn 22. janúar kl. 11:30 (súpufundur)

Kirkjubæjarklaustur – Kirkjubæjarstofa, föstudaginn 22. janúar kl. 20:00

Höfn í Hornafirði – Nýheimar, laugardaginn 23. janúar kl. 13:00

Hlökkum til að sjá ykkur

Guðrún Ingimundardóttir og Brynja Davíðsdóttir