Opnunarhátíð Rannsóknaseturs um sveitarstjórnarmál á Laugarvatni 5. apríl – Niður úr fílabeinsturninum: Hvað geta rannsóknir gert fyrir íslensk sveitarfélög á 21. öldinni?

Föstudaginn 5. apríl næstkomandi milli kl 15:00 – 17:00 í húsnæði Háskóla Íslands á Laugarvatni.

Ávarp flytur Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngu og sveitarstjórnarmála.

Gestafyrirlesarar eru Colin Copus, emeritus prófessor við De Montfort háskóla í Leicester og Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Þau munu fjalla um hvers vegna það er mikilvægt að rannsóknir séu ekki stundaðar í einangruðum fílabeinsturnum og hvaða máli rannsóknir skipta fyrir eflingu sveitarstjórnarstigsins á 21. öldinni.

Að lokum mun rannsóknarstjóri setursins Eva Marín Hlynsdóttir, dósent við stjórnmálafræðideild HÍ, kynna fyrirhugaða starfsemi setursins stuttlega.

Fundarstjóri er Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Dagskrá hefst kl. 15:00 stundvíslega en boðið er upp á kaffi og te frá kl 14:30. Að lokinni formlegri dagskrá verða léttar veitingar í boði setursins.

Fundurinn er opinn öllum en gestir eru beðnir að skrá sig hér.

Vekjum athygli á að málstofan „Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn“ verður haldin fyrr um daginn nánar tiltekið kl. 13 – 14.30  Nánari upplýsingar um málstofuna og skráningu má finna hér.