Ráðning í tvær stöður skólastjóra bókun 170. fundar sveitarstjórnar
- fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar haldinn
þriðjudaginn 7. apríl 2015, kl. 15:00 í Aratungu
Mætt voru:
Helgi Kjartansson, Valgerður Sævarsdóttir, Óttar Bragi Þráinsson, Kolbeinn Sveinbjörnsson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Eyrún M. Stefánsdóttur, Bryndís Á. Böðvarsdóttir, Valtýr Valtýsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
- Ráðning í tvær stöður skólastjóra hjá Bláskógabyggð.
1.1. Ráðning skólastjóra við grunnskólann í Reykholti.
Staða skólastjóra við grunnskólann í Reykholti var auglýst laus til umsóknar í Fréttablaðinu, Dagskránni, Sunnlenska og á heimasíðu Bláskógabyggðar. Umsóknarfrestur var til og með 27. mars 2015.
Alls bárust 8 umsóknir um stöðu skólastjóra grunnskólans í Reykholti. Vinnuhópur hefur yfirfarið innkomnar umsóknir og tekið tvo umsækjendur í viðtöl.
Vinnuhópur gerir tillögu um að Kristín Hreinsdóttir verði ráðin sem skólastjóri grunnskólans í Reykholti.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu og felur sveitarstjóra að ganga frá ráðningarsamningi og senda bréf til annarra umsækjenda um ráðningu í stöðuna.
1.2. Ráðning skólastjóra í samrekinn leik- og grunnskóla á Laugarvatni.
Staða skólastjóra við samrekinn leik- og grunnskóla á Laugarvatni var auglýst laus til umsóknar í Fréttablaðinu, Dagskránni, Sunnlenska og á heimasíðu Bláskógabyggðar. Umsóknarfrestur var til og með 27. mars 2015.
Alls bárust 13 umsóknir um stöðu skólastjóra á Laugarvatni. Vinnuhópur hefur yfirfarið innkomnar umsóknir og tekið þrjá umsækjendur í viðtöl.
Vinnuhópur gerir tillögu um að Elfa Birkisdóttir verði ráðin sem skólastjóri samrekins leik- og grunnskóla á Laugarvatni.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu og felur sveitarstjóra að ganga frá ráðningarsamningi og senda bréf til annarra umsækjenda um ráðningu í stöðuna.
Fundi slitið kl. 16:30.