Rússneskar perlur í Skálholti 12. september kl. 20:00
Rússneskar perlur í Skálholti 12. september kl.20:00 Miðaverð 2.000. Selt við inngangin. Hægt að kaupa mat í skálholtsskóla fyrir tónleikanna, einnig verður kaffiterían í skólanum opin í hléinu.
“Russian Souvenir” – efnisskráin inniheldur rómönsur, sönglög og píanó einleik eftir rússnesk tónskáld. Á tónleikunum “Russian Souvenir “ verða fluttar þekktar rússneskar perlur eins og “Nochnoy Zephyr” eftir A. Dargomyzhsky, “Bloha” eftir M. Mussorgsky, “Adagio úr Hnettubrjótara” eftir P. Tchaikovkiy, “Sirjen” eftir S. Rachmaninov, “Ochi chjernije” o.fl.
Flytjendur: Vladimir Gerts – bassi
Alexandra Chernyshova – soprano
Elina Valieva – píanó
Höfundum efnisskrárinnar er það mikil ánægja að leiða tónleikagesti um stórfenglegan heim klassískrar tónlistar, rússneskra rómansa og píanó meistaraverka. Þessir tónleikar eru frábært tækifæri til að upplifa á ný rómantíska rússneska tónlist og fara í tónlistarferðalag með listamönnum í gegnum tvær aldir í Rússlandi.
Á tónleikunum kemur m.a. fram rússneskur bassasöngvari, Vladimir Gerts, frá Moskvu. Hann lærði söng hjá próf. Nesterenko. Hann söng í óperuhúsinu Bolshoi, var sólóisti í Moscow Philarmonic Society og hefur flutt einsöng og rússneska rómansa og söngva víðar í Evrópu, Kanada, Ísrael, á Indlandi og í fleiri löndum. Hann hefur gefið út marga geisladiska og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir diskana „Two centuries of Russian Romance“ og „Spirit of Russia“ sem hann tók upp ásamt kammersveitinni The Moscow Soloists og diskinn „By the long road“ sem hann tók upp ásamt hinum fræga kvartett „Moscow Balalaika Quartet“.
Alexandra Chernyshova var valin í top 10 framúrskarandi unga Íslendinga árið 2014 fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Hún hefur lokið M.Mus frá Listaháskólanum Íslands, M.Ed. frá Háskólanum í Kiev, Master gráðu í óperusöng og söngkennarapróf frá Odessa Tónlistarakademiu og Glier High Music College og sömuleiðis BA frá National Kiev Linguistic University.
Alexandra stofnaði Óperu Skagafjarðar árið 2006, Söngskóla Alexöndru og stúlknakór Draumaradda Norðursins árið 2008. Alexandra hefur sungið víða um Ísland, Evrópu, New York og líka í Kína og Japans. Í Úkraínu var hún valin „Nýtt nafn Úkrainu“ árið 2002 og vann alþjóðlega
óperukeppni í Rhodes, Gríkklandi sama ár. Alexandra hefur gefið út þrjá einsöngs geisladiska „Alexandra soprano“ (2006), „Draumur“ (2008), „You and only you“( 2011). Hún hóf feril sinn á sviði sem einsöngvari hjá Kiev Academic Musical Theater of Opera and Ballet. Sumarið 2013 kom hún fram í fyrsta skipti hjá New York Contemporary Opera, auk þess sem hún hefur sungið sem einsöngvari með Óperu Skagafjarðar.
Í efnisskrá óperusögunnar hefur Alexandra sungið hlutverk eins og Zerlínu, Natalka Poltavku, Violettu Valery, Lucy, Gilda og fleiri – og síðan söng hún hið nýskapaða óperuhlutverk Ragnheiðar Brynjólfsdóttur í óperunni “Skáldið og Biskupsdóttir” og Álfadrottninguna í barnaóperunni “Ævintýrið um norðurljósin”.
Elina Valievа píanóleikar fæddist í 1992 og byrjaði að æfa píanó frá 5 ára aldri. Í 2010 hún útskrifaðist hún frá Music College in Ufa með hæstu einkunn og hélt áfram námi í Moscow – P.I.Tchaikovsky Conservatory hjá Prof. Yuri Slesarev. Eftir útskriftina frá tónlistarakademíunni spilaði Elina á alls konar tónleikum í Moskvu og Rússlandi, sömuleiðis hefur hún tekið þátt sem sóloisti í ýmiskonar samvinnu verkefnum. Þessa dagana er hún að læra M.Mus í Gnessin Academy hjá Professor Yury Bogdanov.
Elina Valieva er marg verðlaunaður pianóleikari of Ministry of Culture, International charitable programs of the Russian Foundation of Culture, International Charity Foundation „New Names“, „Gifted children“ by Y.Rozum. Elina vann margar innanlands- og alþjóðlegir keppni t.d.:
– VII National Competition „To the birthday Bach » (Kazan, Russia)- I prize, (+ diploma for the best performance of the compulsory piece; – VII International Maria Yudina Competition (Saint-Petersburg, Russia) – 1 prize;
Ufa Festival of Piano competition’s winners „Yondozile“ – the Grand Prix. I National Ismagiloff piano Competition (UFA, Russia) – I prize. – I International Competition „Contemporary Art and Education“ -(Moscow, Russia) – III prize. Elina vinnur með National music theater orchestra. Á hennar efnisskrá er m.a. lög frá Scarlatti til Bach, Prokofiev og Ravel.
Alexandra Chernyshova sópransöngkona, tónskáld og kennari Sími: 421-6364/ Gsm: 894-5254 Netfang: alexandradreamvoices@icloud.com Soprano, composer, educator E-mail: alexandradreamvoices@icloud.com Phone: (+354) 421-6364 Mobile: (+354) 894-5254 Youtube page: https://www.youtube.com/user/alexandrachernyshova Facebook page: https://www.facebook.com/alexandrachernyshovasopranoiceland