Samið við björgunarsveitir

Bláskógabyggð hefur endurnýjað samninga við björgunarsveitirnar tvær sem starfa innan sveitarfélagsins, Björgunarsveitina Ingunni og Björgunarsveit Biskupstungna. Með samningunum eru framlög sveitarfélagsins til starfsemi félaganna aukin. Framlögin felast í rekstrarstyrk fyrir björgunarsveitirnar og ungmennastarf, framlögum fyrir tiltekin verkefni sem sveitirnar sinna, svo sem flugeldasýningar, og styrk til reksturs fasteigna björgunarsveitanna á móti kostnaði þeirra af fasteignagjöldum og heitavatnsnotkun. Þá er kveðið á um að þátttakendur á námskeiðum og æfingabúðum fái frítt í sund þá daga sem viðburðir standa yfir, svo og félagsmenn sem koma úr lengri útköllum. Samningarnir gilda til ársloka 2021. Með framlögum sínum vill Bláskógabyggð leggja áherslu á mikilvægi björgunarsveitanna sem viðbragðsaðila og það félags- og forvarnastarf sem sveitirnar sinna.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Helga Kjartansson, oddvita, Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, og fulltrúa björgunarsveitanna, þá Kristin Bjarnason og Sigurjón Pétur Guðmundsson frá Björgunarsveit Biskupstungna og Grím Kristinsson frá Björgunarsveitinni Ingunni.