Starfsfólk óskast í íþróttamiðstöðina í Reykholti

Leitum starfsmanna fyrir sumarið 2019.

Starfið felur í sér afgreiðslu, gæslu og þjónustu í íþróttamiðstöðinni Reykholti. Starfsmenn sjá einnig um þrif.

Unnið er á vöktum og um helgar.

Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára og standast hæfnispróf skv. öryggissreglugerð um sundstaði. Krafist er sakavottorðs.

Viðkomandi má gjarnan hafa góða þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.

Kunnátta í erlendum tungumálum er kostur.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Sæland s. 663 9010/ skuli@blaskogabyggd.is.