Starfsmaður í hlutastarf/vaktavinnu íþróttamannvirkja í Reykholti
Sveitarfélagið Bláskógabyggð auglýsir laust til umsóknar hlutastarf/vaktavinnu Íþróttamannvirkja í Reykholti.
Verkefni starfsmanns felast m.a. í:
- Gæsla við sundlaug, baðvörslu og eftirliti með íþróttahúsi og þreksal.
- Afgreiðsla – þjónusta við gesti
- Þrif
Hæfniskröfur:
- Hafi þjónustulund, færni í mannlegum samskiptum og reynslu af því að umgangast börn og unglinga.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð
Laun og starfskjör samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2017 en umsóknir og fyrirspurnir skulu berast til sviðsstjóra á netfangið bjarni@blaskogabyggd.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins í Aratungu Reykholti 801 Selfoss.