Sveitarstjórnarkosningar, 14. maí 2022, kjörstaðir

Kjörstaðir í Bláskógabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga  14. maí 2022 eru tveir:

 

  1. Húsnæði Aratungu, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
  2. Húsnæði Bláskógaskóla Laugarvatni, Lindarbraut 6, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.

 

Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

 

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er. Einstaklingar búsettir erlendis, sem hafa kosningarétt í Bláskógabyggð og eru á kjörskrá í kjördeild I, Reykholti.

 

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu frá og með 23. apríl 2022 fram til kl. 12:30 13. maí 2022

 

Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar