Þjóðaratkvæðagreiðsla þann 6. mars 2010
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram þann 6. mars 2010
samkvæmt lögum nr. 4/2010, um gildi laga nr. 1/2010.
Kjörstaðir í Bláskógabyggð eru tveir:
- Grunnskóli Bláskógabyggðar, Reykholti, fyrir íbúa í Biskupstungum.
- Skrifstofa byggingarfulltrúa Laugarvatni, Dalbraut 12, fyrir íbúa í Laugardal og Þingvallasveit.
Kjörfundur hefst í báðum kjördeildum kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Kjósendur eru hvattir til að hafa meðferðis persónuskilríki og framvísi þeim ef óskað er.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu fram á kjördag.
Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar