Framkvæmda- og veitusvið Bláskógabyggðar
Aratungu, Reykholti, 806 Selfoss,
Beinn sími: 480-3012 og gsm sími sviðsstjóra: 860 4440
Framkvæmda- og veitusvið Bláskógabyggðar sér um rekstur og framkvæmdir eftirfarandi rekstrareininga sveitarsjóðs:
> Þjónustumiðstöð Bláskógabyggðar, Reykholti.
Undir Þjónustumiðstöðina heyrir umsýsla leikvalla, íþróttavalla, gatnakerfis, gangstétta, göngustíga, umferðamerkinga, minnismerkja og opinna svæða í þéttbýliskjörnum Bláskógabyggðar. Þjónustumiðstöðin stýrir snjómokstri og hálkueyðingu innan þéttbýliskjarnanna, sem og á skólaleiðum í dreifbýli. Þjónustumiðstöðin heldur utan um sorphirðu sveitarfélagsins, rekstur móttökusvæða sorps og hreinsun opinna svæða. Áhaldahús þjónustumiðstöðvar er staðsett að Dalbraut 2 í Reykholti sími 486-8726 og 860-4440
Bláskógaveita sér um rekstur og framkvæmdir við heita og kaldavatnsveitu Bláskógabyggðar. Þjónustusvæði Bláskógaveitu er í Bláskógabyggð og er hlutverk hennar að tryggja notendum aðgang að heitu og köldu vatni.
Netfang Bláskógaveitu er blaskogaveita@blaskogabyggd.is
Veitustjóri Bláskógaveitu er Benedikt Skúlason sími: 893 3661 bsks@simnet.is Vaktsími: 8606614
Bláskógaljós https://www.blaskogaljos.net/
> Félagsheimilið Aratunga, Reykholti.
Í Félagsheimilinu Aratungu er leigð út aðstaða til samkomuhalds. Þar er einnig rekið mötuneyti fyrir stofnanir Bláskógabyggðar.
Húsvörður félagsheimilisins er Erlendur Óli Sigurðsson sími 861-8828 netfang: husvordur@blaskogabyggd.is
Mötuneyti Aratungu sími 486-8811.
> Íþróttamiðstöðin í Reykholti.
Í íþróttamiðstöðinni er íþróttahús, sundlaug og heitir pottar. Sími íþróttamiðstöðvar er 480-3040.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðvar er Skúli Sæland netfang: skuli@blaskogabyggd.is
Íþróttahús og sundlaug á Laugarvatni Sími 480 3041
Forstöðumaður: Kristbjörg Guðmundsdóttir (í leyfi) Staðgengill: Elías Jóhannsson.
Netfang: sund-laug@blaskogabyggd.is
> Eignasjóður Bláskógabyggðar.
Undir Eignarsjóð heyra allar fasteignir Bláskógabyggðar fyrir utan íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins. Sími Eignasjóðs er 860-4440
> Leiguíbúðir og félagslegar íbúðir.
Hér er rekstur þess íbúðarhúsnæðis sem er í eigu Bláskógabyggðar, hvort sem það er til félagslegra þarfa eða á almennum markaði. Sími leiguíbúða og félagslegra íbúða er 860-4440.
> Fráveita Bláskógabyggðar.
Fráveitan sér um rekstur fráveitukerfis í þéttbýliskjörnum Bláskógabyggðar ásamt því að fylgja eftir reglulegri losun rotþróa í sveitarfélaginu. Sími fráveitunnar er 860-4440.
> Vinnuskóli Bláskógabyggðar.
Vinnuskólinn er starfræktur á sumrin. Starfstöðvar vinnuskólans eru í Reykholti og á Laugarvatni. Sími vinnuskólans er 860-4440.
Starfsmenn Framkvæmda- og veitusviðs:
Kristófer Tómasson sviðsstjóri, sími: 860-4440, netfang: kristofer@blaskogabyggd.is
Björn Einarsson, sími 860-4310, netfang: bjorn@blaskogabyggd.is
Umsjónarmaður sorpgámasvæða: Ewa Kuszlewicz sími 842-2040.