Uppsveitahringurinn 2012

Laugardaginn 8. september, n.k., verður íþróttaviðburðurinn „Uppsveitahringurinn“ haldinn í fyrsta sinn þar sem hlaupið og hjólað verður um uppsveitir Árnessýslu. Keppnin í ár er í tengslum við Uppskeruhátíðina í Hrunamannahreppi sem fram fer sama dag á Flúðum. Ætlunin er að Uppsveitahringurinn verði haldinn árlega.

Í ár verður ein hlaupavegalengd í boði þar sem hlaupið verður á milli Reykholts og Flúða en sú vegalengd er um 10 km.  Ein drykkjarstöð verður á leiðinni. Lagt verður af stað frá Reykholti og endað á Flúðum, keppendur verða að koma sér sjálfir á milli staða.

Í hjólreiðunum verða þátttakendur ræstir út á Flúðum og munu þeir hjóla hring um uppsveitirnar sem er um 46 km að lengd. Hjólaður verður hringur þar sem lagt verður af stað frá Flúðum og hjólað í gegnum Skeiða- og Gnúpverjahrepp, þaðan yfir í Bláskógabyggð, í gegnum Laugarás og Reykholt, yfir brúnna við Bræðratungu og inn á Flúðir í Hrunamannahreppi þar sem endamarkið verður staðsett. Í hjólreiðunum verða ræstir út tveir hópar, skemmtihjólreiðahópur og keppnishjólreiðahópur.

Tímasetningar

Kl. 10.30 – Skemmtihjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum.

Kl. 12.00 – Keppnishjólreiðahópurinn leggur af stað frá Flúðum.

Kl. 12.00 – Hlauparar leggja af stað frá Reykholti.

Kl. 14.00 – Verðlaunaafhending á Flúðum.

Skráning er á www.hlaup.is en skráningarfrestur er til þriðjudagsins 4. september. Þátttökugjald er 2.000 kr. Frítt verður í sund fyrir keppendur í sundlaugarnar á Flúðum og í Reykholti. Allir keppendur fá bol sem merktur er hlaupinu.

Allir keppendur fá verðlaunapeninga, en veitt verði sérstök verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki.

Keppendur geta nálgast keppnisnúmer og keppnisgögn milli kl. 14:00-18:00 föstudaginn 7. september í Íþróttamiðstöðinni í Reykholti. Þá er einnig hægt að nálgast keppnisgögnin milli kl. 9:00-11:00 að morgni keppnisdags. Hægt að skrá sig í keppnina á þessum tíma en þá er þátttökugjaldið 3.000 kr.

Nánari upplýsingar verða settar inná heimasíður sveitarfélaganna þegar nær dregur keppninni. Slóðirnar eru: www.blaskogabyggd.is, www.fludir.is, www.gogg.is og www.skeidgnup.is.

Undirbúningsnefndin