ÚTBOÐ – Gatnagerð Reykholti – 2015

 

 

Verklok eru: 30. september 2015

 

Verkið skiptist í 4 hluta.

1. Kistuholt:

Verkið felur í sér að leggja einfalt lag af klæðningu á götuna, einnig þarf að rétta af enda götunar og leggja tvöfalt lag af klæðningu á hann. Steypa þarf kantstein í báðum endum götunar. Einnig þarf leggja regnvatnslögn í báðum endum, setja niðurföll og tengja regnvatn við núverandi lagnir.

2.  Miðholt:

Gatan er að mestu jarðvegsskipt. Bæta þarf ofan á götuna burðarlag og móta hana, leggja síðan tvöfalt lag af klæðningu á götuna. Steypa þarf kantstein í báðum botnlöngum götunar.

3.  Skólabraut:

Endurnýja skal 400 mm regnvatnslögn þvert yfir götuna milli brunna á móts við gróðurhúsin við Skólabraut.

4.  Sólbraut:

Helstu magntölur eru:

Styrkja skal götu og leggja á hana tvöfalda klæðingu.

  • Neðra burðarlag                                         400 m3
  • Efra burðarlag                                            344 m3
  • Fráveitulagnir                                            169 m
  • Klæðning einfalt lag                                   1 796 m2
  • Klæðning tvöfalt lag                                   3 439 m2

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með miðvikudeginum 24. júní 2015. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ingibjörgu hjá Eflu Suðurlandi í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið utbod.sudurland@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á Efla Suðurland fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 8. júlí 2014, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

 

Sviðsstjóri þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar