Útboð

Sláttur og hirðing í Bláskógabyggð

Bláskógabyggð, Háskóli Íslands og Menntaskólinn að Laugarvatni óska eftir tilboðum í verkið „Sláttur og hirðing í Bláskógabyggð“.

Samningstímabil þessa útboðs er frá 15. maí 2010 til 15. september 2012. Heildarstærð verkstaða samkvæmt útboðsgögnum er  187.921  m2.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, frá og með miðvikudeginum 17. mars gegn 5000 kr. skilagjaldi.

Kynningarfundur á útboðsgögnum og verkþáttum verður í Félagsheimilinu Aratungu kl. 14:00 miðvikudaginn 24. mars. Í framhaldi af fundinum verður vettvangsskoðun á verkstöðum í Reykholti, Laugarási og á Laugarvatni.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Bláskógabyggðar, Aratungu, Reykholti, 801 Selfossi, fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 15. apríl 2010, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Nánari upplýsingar veitir Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri Þjónustu- og framkvæmdasviðs Bláskógabyggðar í síma 486-8726.

Bláskógabyggð, Háskóli Íslands og

      Menntaskólinn að Laugarvatni.