Viðburðadagatal „Leyndardóma Suðurlands“

Föstudaginn 28. mars k. 14:00 hefst kynningarátakið Leyndardómar Suðurlands þegar ráðherrar Suðurkjördæmis, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, ásamt Gunnari Þorgeirssyni, formanni Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mæta við Litlu Kaffistofuna og klippa á borða og opna þar með 10 daga hátíð á Suðurlandi. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, sem standa að átakinu bjóða frítt í Strætó alla þessa daga frá Reykjavík um allt Suðurland.  Tæplega 200 viðburðir eru skráðir til leiks á leyndardómunum og fór þátttakan langt fram úr björtustu vonum skipuleggjenda.

18541_Logó Leyndardómanna 1

Hér kemur viðburðadagatal um leyndardóma Suðurlands hægt er að smella hér fyrir neðan til að nálgast bæklinginn og dagatalið.

Bæklingur

Leyndardómar Suðurlands

Dagatalinu verður dreift inn á öll heimili á Suðurlandi á miðvikudag og fimmtudag í næstu viku.
Það vantar  viðburði þarna inn en það eru viðburðir sem komu of seint til að ná inn í dagatalið.
Þeir fara allir inn á www.sudurland.is með öllu sem er á dagatalinu.