Fundarboð 276. fundar sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar – 276
FUNDARBOÐ
- fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar
verður haldinn í Aratungu, Reykholti, 18. febrúar 2021 og hefst kl. 15:15
Dagskrá:
Fundargerðir til staðfestingar | ||
1. | 2101004 – Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar | |
12. fundur framkvæmda- og veitunefndar haldinn 11. febrúar 2021 | ||
2. | 2101007 – Fundargerð skipulagsnefndar | |
211. fundur skipulagsnefndar haldinn 10.02.2021, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1-10. | ||
3. | 2101026 – Fundargerð fjallskilanefndar Biskupstungna | |
Fundur haldinn 27.01.2021 | ||
Fundargerðir til kynningar | ||
4. | 2101022 – Fundargerð stjórnar SASS | |
567. fundur stjórnar SASS haldinn 05.02.2021 | ||
5. | 2101008 – Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa | |
137. fundur haldinn 03.02.2021 | ||
6. | 2101010 – Fundargerð NOS (nefndar oddvita sveitarfélaga) | |
Fundur haldinn 04.02.2021 | ||
7. | 2101013 – Fundargerð byggingarnefndar Búðarstígs 22 (Byggðasafn Árnesinga) | |
10. fundur haldinn 09.02.2021 | ||
8. | 2101021 – Fundargerð stjórnar Bergrisans | |
26. fundur haldinn 26.01.2021 | ||
Almenn mál | ||
9. | 2102019 – Námsvist utan lögheimilissveitarfélags | |
Beiðni um að nemandi sem er með lögheimili í Blaskógabyggð stundi nám í grunnskóla í öðru sveitarfélagi. | ||
10. | 1806006 – Stofnun lögbýlis á Fellsenda landi, beiðni um umsögn | |
Erindi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, dags. 9. febrúar 2021, um að umsókn um nýtt lögbýli á Fellsenda, 222604, hafi verið tekin til meðferðar að nýju. Óskað er umsagnar sveitarstjórnar um stofnun lögbýlis. | ||
11. | 2102028 – Umsókn um lóðina Háholt 4, Laugarvatni | |
Umsókn Melavíkur ehf um lóðina Háholt 4, Laugarvatni | ||
12. | 2102029 – Umsókn um lóðina Háholt 6, Laugarvatni | |
Umsókn Melavíkur ehf um lóðina Háholt 6, Laugarvatni | ||
13. | 2101031 – Umsókn um styrk með niðurfellingu fasteignaskatts 2021 | |
Erindi Golfklúbbsins Dalbúa, dags. 11.02.2021, þar sem ítrekuð er ósk klúbbsins um styrk frá sveitarfélaginu vegna fasteignagjalda. Áður á dagskrá á 273. fundi. | ||
14. | 2004032 – Hjólhýsasvæði Laugarvatni | |
Sveitarstjóri fer yfir stöðu mála vegna beiðni Samhjóls frá 275. fundi sveitarsjtórnar | ||
15. | 2102016 – Skólastjórabústaður Reykholt 2 | |
Fyrirhuguðu heimsókn sveitarstjórnar í Bláskógaskóla Reykholti vegna húsnæðismála, tillaga um frestun. | ||
Almenn mál – umsagnir og vísanir | ||
16. | 2102026 – Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál. | |
Beiðni Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 04.02.2021, um umsögn um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál.
Umsagnarfrestur er til 18. febrúar nk. |
||
17. | 2102027 – Frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál. | |
Beiðni Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 04.02.2021, um umsögn um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.
Umsagnarfrestur er til 18. febrúar nk. |
||
Mál til kynningar | ||
18. | 2102024 – Aðalfundur Samorku 2021 | |
Boð á aðalfund Samorku 2021, sem haldinn verður 10. mars 2021, ásamt ársreikningi og tillögu að lagabreytingum. | ||
16.02.2021
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.