Byggðaþróunarfulltrúi

Lína Björg Tryggvadóttir er byggðaþróunarfulltrúi og hefur hún aðsetur í Aratungu í Reykholti.
Lína starfar fyrir sveitarfélögin fjögur í Uppsveitum Árnessýslu; Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða-og Gnúpverjahrepp.

Starf byggðaþróunarfulltrúa er margþætt en Lína veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og að svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar og atvinnuuppbyggingar. Auk þess kemur hún að ferðatengdum málum og málum tengdum fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir einnig verkefnum í samráði við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og veitir hún því öllum sem til hennar leita upplýsingar um mögulega styrki úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands ásamt því að hún hefur góða þekkingu á styrkumsóknum og styrkjum sem í boði eru á hverjum tíma.

Ef þið þurfið aðstoð eða upplýsingar varðandi styrki, frumkvöðlaaðstoð eða annað sem viðkemur fjármögnun verkefna eða þú þarft almennar upplýsingar eða aðstoð er varðar atvinnuþróunar- eða byggðaþróunarverkefni þá hikið ekki við að hafa samband.

lina@sveitir.is
Farsími: 859-7870
Sími: 480 3009

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?