Vatnsveita

Bláskógabyggð rekur vatnsveitu. Auk þess eru margar vatnsveitur í sveitarfélaginu reknar af einkaaðilum.

Umsókn vegna heimlagnar frá Bláskógaveitu má senda á blaskogaveita@blaskogabyggd.is. Umsóknareyðublað.

Vaktsími veitunnar er: 860 6614. Vinsamlegast hafið eingöngu samband við vaktsíma vegna bilunar í hita- eða vatnsveitukerfi Bláskógabyggðar. Almennar fyrirspurnir varðandi nýjar tengingar, reikninga o.þ.h. skulu sendar skriflega á skrifstofu Bláskógabyggðar á netfangið blaskogaveita@blaskogabyggd.is
Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu á opnunartíma í gegnum síma 480 3000.

Bilun getur verið í húskerfinu þarf þá að kalla til pípara. Bilanir innanhúss eru nær alltaf á verksviði pípulagningameistara eða annarra fagmanna á sviði pípulagna.

Ef ljóst er að þrýstingur hefur fallið við inntak skal hafa samband við vaktsíma eða skrifstofu.

Mögulegt er að hreinsa þurfi síu í inntaki eftir viðgerðir og bilanir.

Mikilvægt er að tryggja gott aðgengi að inntaki. Þetta getur skipt sköpum við að koma í veg fyrir vatnstjón.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?