Sorp og endurvinnsla

Bláskógabyggð rekur þrjár móttökustöðvar fyrir úrgang (gámasvæði). Þær eru staðsettar við Heiðarbæ í Þingvallasveit, við Lindarskóg á Laugarvatni og við Vegholt í Reykholti. Símanúmer umsjónarmanns er 842 2040.

Opnunartími móttökustöðva:

Heiðarbær (Þingvallasveit):

Þriðjudaga frá kl 10-12, fimmtudaga frá kl 14-16 og laugardaga frá kl 10-12. 

Lindarskógar (Laugarvatni):

Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl 10-13, föstudaga frá kl 14-17 og laugardaga frá kl 13-15.

Vegholt (Reykholti): 

Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl 14-17, föstudaga frá kl 10-13 og laugardaga frá kl 16-18.

Bláskógabyggð semur við verktaka um sorphirðu frá heimilum og lögbýlum í sveitarfélaginu. Flokka skal allan úrgang og hefur hvert heimili fjórar tunnur, brúna tunnu fyrir lífrænan úrgang, græna tunnu fyrir plast, bláa tunnu fyrir pappír og pappa og gráa tunnu fyrir blandaðan úrgang. Sorphirða fer fram samkvæmt sorphirðudagatali.

Klippikort

Allir fasteignaeigendur sem greiða gjald fyrir fastan kostnað og rekstur söfnunarstöðva (gámastöðva) fyrir íbúða- og frístundahúsnæði fá afhent klippikort sem veitir þeim gjaldfrjálsan aðgang að gámastöð í 12 skipti á ári, fyrir samtals 3,5 rúmmetra.

Allir fasteignaeigendur sem greiða gjald vegna meðhöndlunar úrgangs fyrir lögbýli fá afhent klippikort sem veitir þeim gjaldfrjálsan aðgang að gámastöð í 10 skipti á ári, fyrir samtals 2,5 m³.

Allir fasteignaeigendur sem greiða gjald fyrir fastan kostnað og rekstur söfunarstöðva (gámastöðva) og gjald vegna meðhöndlunar úrgangs fyrir fyrirtæki fá afhent klippikort sem veitir þeim gjaldfrjálsan aðgang að gámastöð í 12 skipti á ári, fyrir samtals 9 m³.

Umframmagn er gjaldskylt á móttökustöð, miðast við m³ þess úrgangsmagns sem afsett er.

Sorphirðudagatal 2026

Opnunartími gámasvæða.  

Staðsetning móttökustöðva.

Samþykkt um meðhöndlun úrgangs.

 

 

  

 

  

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?