100 ára afmæli Reykholts

Fréttir 04.05.2026

100 ára afmæli Reykholts í Bláskógabyggð verður fagnað 20. maí 2026.
Í tilefni tímamótanna hafa verið gerð fræðsluskilti um sögu þorpsins og efnt verður til hátíðar í Reykholti á afmælisdaginn 20. maí. Hátíðardagskrá hefst kl. 16:00 á horninu þar sem Skólabraut/Sólbraut mætast. Söguskiltin verða afhjúpuð þar formlega og síðan boðið upp á afmælis- sögugöngu með leiðsögn og fróðleik um Reykholt, gengið upp að Reykholtshver, Reykholtsskóla og Aratungu. Við lok göngunnar verður boðið upp á veitingar í Aratungu.
Öll hjartanlega velkomin.

Upphaf byggðar í Reykholti má rekja til þess að 20. maí 1926 gaf vinnumaðurinn Jón Halldórsson Biskupstungnahreppi land og fé fyrir barnaskóla sem byggður skyldi við Reykholtshver í landi Stóra-Fljóts. Engir mannabústaðir voru þá í Reykholtinu en bærinn á Stóra-Fljóti stóð í hæðinni rétt ofan við bæjarhúsin á Brautarhóli.

Nú eru hundrað ár liðin frá þessum gjafagjörningi og við minnumst upphafsins og þeirra sem ruddu brautina, hófu garðyrkju og búskap í Reykholti, beisluðu Reykholtshver, lögðu vegi og lagnir um svæðið. Fyrstu býlin voru byggð 1929-1952. Hér myndaðist fljótlega gott mannlíf og margir öflugir frumherjar komu að uppbyggingunni.

Reykholt hefur vaxið hratt undanfarin ár og þar blómstar mannlíf og menning. Í dag eru íbúar tæplega 500 talsins og sannkallað fjölmenningarsamfélag. Reykholt er öflugasta ylræktarsvæði landsins, þar sem heita vatnið er svo sannarlega lífæð samfélagsins.