9 mánaða rekstraryfirlit Bláskógabyggðar

Fréttir 18.11.2026

Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar sem haldinn var 18. nóvember var lagt fram yfirlit yfir rekstur sveitarfélagsins fyrstu níu mánuði ársins. 

Árshlutayfirlit Bláskógabyggðar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026 sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta að fjárhæð 209,0 m.kr., samanborið við 112,4 m.kr. samkvæmt fjárhagsáætlun tímabilsins. Rekstrarniðurstaðan er því 96,6 m.kr. betri en áætlað var.
Rekstrartekjur A- og B-hluta námu samtals 2.335,1 m.kr., en rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, námu um 1.995,5 m.kr. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 115,6 m.kr., sem er 11,5 m.kr. umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 35,6 m.kr., en áætlun gerði ráð fyrir 21,7 m.kr. jákvæðri niðurstöðu. A-hluti er því um 13,9 m.kr. yfir áætlun.
Handbært fé frá rekstri nam 703,7 m.kr. á tímabilinu hjá A- og B hluta. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu um 909,0 m.kr. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 400,0 m.kr., en afborganir langtímalána námu um 138,2 m.kr. Handbært fé í lok september var 224,6 m.kr.
Heildareignir sveitarfélagsins voru 5.297,9 m.kr. í lok september. Eigið fé nam 2.395,2 m.kr. og skuldir og skuldbindingar samtals 2.902,8 m.kr.

Árshlutayfirlitið sýnir að rekstur samstæðu sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi eftir fyrstu níu mánuði ársins og rekstrarniðurstaða A- og B-hluta er umtalsvert betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrartekjur eru undir áætlun, en á móti vegur að rekstrargjöld eru einnig lægri en áætlað var, sem hefur jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Á sama tíma hafa fjárfestingar aukist verulega og handbært fé lækkað frá miðju ári. Mikilvægt verður að fylgjast áfram vel með þróun rekstrarkostnaðar, fjárfestingum og lausafjárstöðu sveitarfélagsins á síðasta ársfjórðungi.