Álagning fasteignagjalda 2026

Fréttir 27.01.2026

Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagningu vegna ársins 2026. Álagningarseðlar eru ekki sendir út í bréfapósti en hægt er að nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir í pósthólfi á „Mínar síður“. Innskráning á ,,Mínar síður“ er með rafrænum skilríkjum.

Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn í heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar.

Allar nánari upplýsingar um álagningarreglur Bláskógabyggðar má finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Bláskógabyggð er sérstaklega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum og bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið vegna afsláttar af fasteignagjöldum á heimasíðu Bláskógabyggðar Tekjuviðmið 2026

Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa samband við Sigríði Emilíu Eiríksdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar í síma: 480-3000 (mánudaga – fimmtudaga frá kl. 9 -12 og 13 – 15 en föstudaga frá kl. 9 – 12, eða í netfang: emma@blaskogabyggd.is.

Bláskógabyggð