Bergmál á Þingvöllum

Fréttir 19.06.2026

Laugardaginn 20. júní nk fer fram stærsti viðburður ársins í Bláskógabyggð þegar tónlistarhátíðin Bergmál verður haldin á Þingvöllum. Fjöldi listamanna kemur fram, þar á meðal Kaleo, Stuðmenn, Helgi Björnsson, GDRN og fleiri.  Hátíðin hefst klukkan 11:00 á litla sviðinu á Valhallarreit. Kl.14:00 hefst dagskrá á stærra sviði, Dynbergi, á völlunum skammt frá Öxarárfossi og stendur þar yfir til miðnættis.

Upplýsingar um skipulag umferðar og fleira má finna á þessum hlekk.