Bláskógabyggð kaupir jörðina Laugarás

Fréttir 20.04.2026

Skrifað var undir kaup Bláskógabyggðar á jörðinni Laugarási föstudaginn 17. apríl sl. Laugarárjörðin hefur verið í sameiginlegri eigu sveitarfélaganna Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá árinu 1922 þegar jörðin var keypt því þar skyldi læknir vera staðsettur.

Laugarásjörðin var metin af fasteignasölu á 280 milljónir og samþykktu sveitarfélögin að miða skyldi við það kaupverð. Eignarhlutur sveitarfélaganna í jörðinni var eftirfarandi: Bláskógabyggð 33,2%, Hrunamannahreppur 30,0%, Skeiða- og Gnúpverjahreppur 24,5% og Grímsnes- og Grafningshreppur11,9%. Bláskógabyggð greiddi því 187.040.000 kr til hinna sveitarfélaganna fyrir jörðina.

Með kaupum Bláskógabyggðar á Laugarássjörðinni einfaldast m.a. öll stjórnsýsla á jörðinni og öll skipulagsvinna og framtíðarsýn jarðarinnar verður öll á einni hendi.

Á myndinni sem tekin var tekin þegar skrifað var undir kaupsamninginn eru oddvitar sveitarfélaganna þau Haraldur Þór Jónsson, Jón Bjarnason, Ása Valdís Árnadóttir og Helgi Kjartansson.