Bláskógabyggð mótmælir auknum álögum á ferðaþjónustu
Fulltrúar sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu og Flóa funduðu með þingmönnum Suðurkjördæmis 30. september. Af hálfu Bláskógabyggðar var sjónum sérstaklega beint að tveimur málum sem varða auknar álögur á ferðaþjónustu: fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón og gjaldtöku á ferðamannastöðum við Gullna hringinn.
Hækkun virðisaukaskatts á baðlón
Bláskógabyggð mótmælir áformum um að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Tvö baðlón hafa verið tekin í notkun í sveitarfélaginu á einu ári, Laugarás Lagoon í Laugarási og endurnýjað og stækkað baðlón Fontana á Laugarvatni.
Fjárfesting í baðlónum og tengdum rekstri á Suðurlandi nemur yfir 35 milljörðum króna og starfsemin skapar rúmlega 400 heilsársstörf. Sveitarfélagið telur að breytingin geti dregið úr frekari fjárfestingum og uppbyggingu og skapað óvissu um störf. Þá er gagnrýnt að breytingin eigi að taka gildi með mjög skömmum fyrirvara.
Bláskógabyggð hefur jafnframt ráðist í verulega innviðauppbyggingu vegna aukinnar starfsemi á svæðinu, meðal annars vegna þarfar fyrir heitt og kalt vatn. Samdráttur í starfseminni getur því einnig haft bein áhrif á fjárhag sveitarfélagsins.
Gjaldtaka við Gullna hringinn
Bláskógabyggð lýsir einnig yfir áhyggjum af fyrirhugaðri gjaldtöku á þremur fjölsóttum ferðamannastöðum sem allir eru innan sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið telur að áhrifin geti náð langt út fyrir þessa þrjá staði enda sé Gullni hringurinn mikilvæg undirstaða ferðaþjónustu á Suðurlandi. Fækkun ferðamanna getur haft áhrif á gistingu, veitingarekstur, afþreyingu og aðra þjónustu, auk þess að hafa áhrif á störf, fjárfestingar og tekjur sveitarfélaga.
Bláskógabyggð gagnrýnir jafnframt að ekki hafi verið haft samráð við hagaðila á svæðinu og að ekki liggi fyrir greining á fjárhagslegum áhrifum gjaldtökunnar. Sveitarfélagið telur rétt að skoða aðrar og almennari leiðir til fjármögnunar innviða ferðaþjónustunnar sem raski síður samkeppnisstöðu milli landsvæða.
Bláskógabyggð kallar eftir samtali við ríkisvaldið um bæði málin og telur mikilvægt að áhrif fyrirhugaðra breytinga verði metin til hlítar áður en ákvarðanir eru teknar.